Skjaldborg

Hátíð íslenskra heimildamynda

Hvítasunnuhelgina 9-12. maí verður Skjaldborg – hátíð íslenkra heimildamynda haldin í annað sinn á Patreksfirði. Auk þess að frumsýna nýjar íslenskar heimildamyndir er hátíðinni ætlað að vera vettvangur fyrir kvikmyndagerðarfólk og áhugamenn um heimildamyndir til að hittast og skiptast á skoðunum. Í lok hátíðarinnar verður besta heimildamyndin á Skjaldborg 2008 valin af áhorfendum.

Á hátíðinni í fyrra voru frumsýndar tæplega 20 íslenskar heimildamyndir og hlaut hún mikið lof bæði kvikmyndagerðarfólks og annarra gesta. En á sama tíma og gróska hefur aldrei verið meiri í heimildamyndagerð hér á landi hefur reynst erfitt að fá myndirnar teknar til sýninga í kvikmyndahúsum og sjónvarpi. Á Skjaldborgarhátíðinni á Patreksfirði geta þeir sem unna góðum heimildamyndum komið saman, horft á þær í góðri sýningaraðstöðu og tekið þátt í tengdum umræðum.

Skjaldborg leggur sig fram við að sýna heimildamyndir sem öðruvísi kæmu aldrei fyrir augu almennings og ber jafna virðingu fyrir hinu smáa, stóra, skrýtna og ódýra. Myndirnar sem þegar hefur verið raðað á dagskrá hátíðarinnar eru frá því að vera örstuttar og upp í fulla lengd og eru efnistökin fjölbreytt. Sýndar verða rúmlega tuttugu myndir yfir helgina og má þar meðal annara nefna:

Kjötborg eftir Helgu Rakel og Huldu Rós beinir sjónum að lífi og störfum síðasta kaupmannsins á horninu og samskiptum hans við viðskiptavinina.

Ævintýrin gerast enn eftir Anup Gurung fylgir eftir uppsetningu óperunnar La Traviata í Skagafirði.

The Great Northern Documentary eftir Heimi Sverrisson segir frá hljómsveitinni Mínus í L.A. við upptökur á plötunni The Great Northern Whale Kill.

Bara 5 mínútur í viðbót eftir Steindór Gunnar Steindórsson fjallar um tölvuleikjafíkn.

Chequered flags of our fathers eftir Árna Magnússon fjallar um feðgana Andy og Albert Carter og háleita drauma föðurins um að koma 4 ára syni sínum í Formúlu 1.

Gufan - Ber er kverúlant að baki eftir Ara Eldjárn bregður óvæntu ljósi á samfélagið í heitu pottunum.

Á hátíðinni verður einnig sýnt úr heimildamyndum sem enn eru í vinnslu og spjallað við leikstjóra þeirra. Af staðfestu efni má nefna Sólskinsdreng sem Friðrik Þór Friðriksson vinnur nú að, þar sem einhverfa er tekin til umfjöllunar.

Heiðursgestur hátíðarinnar í ár er Albert Maysles, einn af kunnustu heimildarmyndagerðarmönnum samtímans og hefur ásamt bróður sínum og helsta samstarfsmanni David Maysles haft gríðarleg áhrif í faginu. Maysles-bræður urðu snemma merkisberar „cinéma vérité“ heimildamyndagerðar en þá nálgast kvikmyndagerðarmaðurinn viðfangsefni sitt án nokkurs handrits og hefur af því sem allra minnst afskipti - stundum kallað fluga-á-vegg kvikmyndagerð.

Fyrir utan frumlega nálgun við viðfangsefni sín urðu Maysles-bræður fljótt þekktir fyrir óvenjulegar svipmyndir af mörgum frægustu einstaklingum 20. aldarinnar. Má þar nefna Marlon Brando, Truman Capote, Orson Welles, Bítlana og Rolling Stones. Áralangt samband Alberts og Davids við listamennina Christo og Jeanne-Claude í tengslum við myndir um óhemju umfangsmikil útilistaverk þeirra skilaði þeim bræðrum óskarsverðlaunatilnefningu árið 1974.

Þrjár þekktustu heimildamyndir Maysles-bræðra verða sýndar á Skjaldborg. Þær eru Salesman (1968), Gimme Shelter (1970) og Grey Gardens (1976). Að auki verður nýjasta mynd Alberts, The Gates (2007) sýnd á hátíðinni. Albert Maysles mun sjálfur verða viðstaddur sýningu á einni af myndum sínum auk þess að sitja fyrir svörum og segja ítarlega frá glæsilegum ferli.

Skjaldborgarhátíðin verður sett föstudagskvöldið 9. maí en kvikmyndasýningar fara fram á laugardeginum og sunnudeginum. Heimamenn bjóða gestum upp á skoðunarferð um sveitina, siglingu um fjörðinn, snarkandi grillveislu og á sveitaball í lok hátíðarinnar.

Skjaldborgarbíó á Patreksfirði var nýverið gert upp og er eitt fallegasta kvikmyndahúsið á Íslandi. Það býr yfir fullkominni sýningaraðstöðu, nýju dolby digital hljóðkerfi og tekur 180 manns í sæti.