Verk í vinnslu.
Sigríður Níelsdóttir er stórmerkileg 78 ára gömul listakona, sem býr yfir fádæma sköpunargleði og atorku sem glatt hefur alla sem komist hafa í kynni við tónlist hennar. Hún hefur á aðeins sjö ára tímabili gefið út sextíu breiðskífur með eigin lagasmíðum.
Einn sá eiginleiki Sigríðar sem er hvað mest hrífandi, er hvað hún nálgast sinn miðil af miklu sakleysi, og hversu hlý, organísk og frumleg heimatilbúin sköpunarverk hennar eru.
Sjálfstæð heimspeki hennar gagnvart lagasmíðum er kollegum hennar í reykvísku tónlistarbrasi botnlaus brunnur andagiftar, þó sumir þeirra séu allt að því hálfri öld yngri en hún.
Hæfileiki hennar að dansa eftir takti eigin trumbu og heilbrigð vanvirðing hennar fyrir viðteknum vinnuaðferðum hefur skapað henni sérstakan sess í íslenskri tónlistarflóru, þar sem hún er ein af fáum núlifandi alvöru költ fígúrum.
Sigríður er að mörgu leyti ekki ósvipuð teiknimyndafígúru. Ljóðræn uppátæki á borð við það að fóstra vængbrotna dúfu sem í staðinn syngur með sérvitrum lagstúfum hennar, kalla á hreyfimyndir sem brúa óljóst bilið á milli óviðjafnanlegs ímyndunarafls hennar og dásamlega skringilegrar hversdags tilveru.
Persónuleg saga hennar er grátbroslegt ævintýri sem við fáum að kynnast meðal annars í gegnum tónlist hennar. Hún fæddist í Danmörku árið 1930, en dramatísk örlög leiddu hana til Íslands þegar hún var táningur og hér hefur hún dvalið æ síðan með 12 ára viðkomu í Brasilíu, alið þrjár dætur og gefið okkur ógrynni af stórkostlegri tónlist.
Þessi mynd er gerð til heiðurs æðislegrar tónlistarkonu og hennar takmarkalausu sköpunargleði.
Leikstjórn: Kira Kira og Orri Jónsson.
Collage hér fyrir ofan er eftir Ingibjörgu Birgisdóttur sem einnig sér um animation í myndinni.
