Óshlíð

Í hryllingsverkinu Óshlíð er gerð tilraun til þess að fanga óhug sem slegið hefur fjölmarga sem ekið hafa um Óshlíðina. Óhugurinn ræðst af yfirvofandi lífshættum sem liggja í dvala í sundursprungnu fjallinu fyrir ofan veginn. Óhugurinn ræðst af tilraunum Vegagerðarinnar til að búa til vegskála og grjóhrunsgirðingar til að vernda lífið sem um veginn ferðast. Óhugurinn ræðst af snarbrattri hlíð sem steypist ofan í stórgrýtta fjöru. Óhugurinn ræðst af frásögnum þeirra sem farið hafa um þennan veg og lifað af.

 

Framleiðandi: Sigurjón Baldur Hafsteinsson
Leikstjórn: Sigurjón Baldur Hafsteinsson
Kvikmyndataka: Jón Þór Þorleifsson
Myndvinnsla / klipping: Hafsteinn Rafn Grétarsson
Tónlist: Jóhann Friðgeir Jóhannsson
Hljóðvinnsla: Hafsteinn Rafn Grétarsson / Jóhann Friðgeir Jóhannsson
Lengd: 8:20 min.
Format / skjáhlutfall: 2.35:1 (Cinemascope)

oshlid