Mansa – Sælan 20 ára

Sæluhelgin á Suðureyri er fyrir löngu búin að skipa sér sess sem aðalhátíð Súgfirðinga nær og fjær. Í fyrstu var hún aðeins Mansakeppni (veiðikeppni), en óf fljótt uppá sig allskonar uppákomum og á 11. hátíðinni var nafn hennar breytt í Sæluhelgi. Hátíðin í júlí 2007 var sú 20. í röðinni og var sérstaklega til hennar vandað af því tilefni. 

Mansavinir er hópur manna, sem haldið hefur hátíðinni gangandi gegnum árin. Aðalmenn í þeim hópi eru: Ævar Einarsson, Guðni A. Einarsson, Óðinn Gestsson, Sturla P. Sturluson og Helga G. Kristjánsdóttir og eru þau þulir í myndinni. Í þessum hópi er einnig Ragnar Guðleifsson.

 

Framleiðandi: Sigurður Ólafsson og Mansavinir.
Leikstjórn: heimildarmynd.
Kvikmyndataka: Sigurður Ólafsson.
Myndvinnsla / klipping: Sigurður Ólafsson.
Tónlist: Af óútgefnum diski með vinningslögum Sæluhelgarinnar gegnum árin.
Hljóðvinnsla: Sæluhelgarlögin voru unnin í ýmsum hljóðverum.
Annað hljóð: Sigurður Ólafsson
Lengd: 24 mínútur.
Format / skjáhlutfall: 4:3

mansa