Kröftug Korpumenning er þriggja mínútna heimildarmynd að gerðinni Cinema Vérité. Slíkar myndir komu fyrst fram í Bandaríkjunum, Kanada og Frakklandi um 1960 Sú tegund heimildarmynda sýnir það sem verður til í raunveruleikanum og ekkert er sett á svið.. Reynt var að fanga tilfinningar og hug áhorfandans og fá hann til að setja sig inn í framkvæmdir við opnun Sjónlistarmiðstöðvar á Korpúlfsstöðum vorið 2007.
Höfundur heimildarmyndarinnar er Sólveig Dagmar Þórisdóttir meistaranemi í Hagnýtri menningarmiðlun við Hugvísindadeild Háskóla Íslands.
Tónlistina í myndinni gerði Gunnar Theodór Eggertsson.
Myndin er gott innlegg í safn heimildarmynda á Íslandi og varðveitir raunverulegar heimildir um mikilvægt skref í uppbyggingu menningar á Íslandi.
Höfundur: Sólveig Dagmar Þórisdóttir
Handrit og umsjón: Sólveig Dagmar Þórisdóttir
Tónlist: Gunnar Theodór Eggertsson
Myndataka og hljóð: Sólveig Dagmar Þórisdóttir
Klipping og myndvinnsla: Háskóli Íslands, Auglýsingastofa Íslands: Sólveig Dagmar Þórisdóttir
Lengd: 3 mín.
