The Great Northern Documentary

The Great Northern Documentary er heimildarmynd um för rokkhljómsveitarinnar Mínus til Los Angeles veturinn 2006.

Hljómsveitin dvaldi í Sound Factory Studios í Hollywood  frá nóv til des 2006 ásamt Grammy verðlaunahafanum Husky Höskulds og hinum þekkta upptökustjóra Joe Barresi sem hefur m.a annars stjórnað upptökum hjá Queens of the Stone Age og Tool.

Í myndinni er fylgst með upptökuferlinu á The Great Northern Whalekill ásamt viðtölum við hljómsveitameðlimi, vini þeirra og samstarfsmenn í Los Angeles.

Þetta er hröð og skemmtileg mynd um upptökuferli nýjustu plötu hljómsveitarinnar og sýnir Mínus í öðru ljósi en áður hefur sést þeas hvernig þeir vinna í hljóðveri og hvernig þeir eyða tíma sínum utan þess.

 

Framleiðandi: Heimir Sverrisson og Kári Sturluson.
Leikstjórn: Heimir Sverrisson.
Kvikmyndataka: Heimir Sverrisson.
Myndvinnsla / klipping: Heimir Sverrisson.
Tónlist: Mínus ofl.
Hljóðvinnsla: Árni Ben / Heimir Sverrisson
Lengd: 46 mín
Format / skjáhlutfall: 16:9

minus