Bara fimm mínútur í viðbót

Lýsing

Heimildarmyndin “Bara 5 mínútur í viðbót” fjallar um tölvuleikjafíkn ungfólks (þó aðalega drengja). Sýnt er framá hvernig fíknin hefur áhrif á þeirra nánasta umhverfi, félagsleganþroska og almennt líf þriggja drengja. Talað er við sérfræðinga s.s. sálfræðing, tölvufræðing, yfirlögregluþjón, sem og þrjá drengi á mismunandi aldri sem allir eiga það sameiginlegt að vera háðir tölvuleikjum.

 

Markmið.

Markmið myndarinnar er að taka saman upplýsingar sem tengjast tölvuleikjafíkn og sýna það á nútíma formi. Undanfarið hefur mikið verið rætt um tölvuleikjafíkn í sjónvarpi, blöðum og samfélaginu öllu. Þetta er vaxandi vandamál sem vert er að fjalla um og vekja athygli á. Tölvuleikjafíkn er orðið að samfélagsmeini sem kalla má falið eða þögult vandamál. Fíknin leynist inná heimilum fólks og getur orðið svo alvarleg að það kemur til kasta lögreglu þegar taka þarf á vandamálinu. 

Myndin er fyrst og fremst hugsuð sem hjálpartæki í forvarnarstarfi og ætti að nýtast fagaðilum sem og öðrum uppalendum.

 

Fræðileg umfjöllun

Myndin er að öllu leiti byggð á viðtölum. Sú fræðilega umfjöllun sem fram kemur í myndinni byggist á þeim spurningum sem lagðar voru fyrir viðmælendur. Þær spurningar voru byggðar á efni sem tengist beint eða óbeint tölvuleikjafíkn það er, af netinu, bókmenntum og greinum.

 

Tenging við kenningar og rannsóknir.

Nýlega var gerð könnun á vegum sálfræðinema Háskóla Íslands þar sem segir að tæplega 14% framhaldsskólanema teljast eiga í miklum vanda hvað varðar tölvuleikjanotkun. Þessi rannsókn varð til þess að ég kynnti mér á hvaða aldri áhættuhópurinn er allra helst, sem er 15-25 ára. Viðmælendur myndarinnar falla inní þennan áhættuhóp en þeir eru 17 ára, 20 ára og 24 ára.

Einnig kynnti ég mér þær upplýsingar og kannanir sem gerðar voru erlendis og fjallað var um í íslenskum fjölmiðlum. Benda má á að erfitt var að afla sér upplýsinga annarra en þeirra sem hafa verið birtar vegna þess hve falið þetta vandamál er og nýtt.

 

Framleiðandi: Steindór Gunnar Steindórsson (Beiskir)
Leikstjórn: Steindór Gunnar Steindórsson
Kvikmyndataka: Steindór Gunnar Steindórsson og Jón Snær Ragnarsson.
Myndvinnsla / klipping: Steindór Gunnar Steindórsson
Hljóðvinnsla: Steindór Gunnar Steindórsson
Lengd: 30 mínútur
Format / skjáhlutfall: 4:3

 

Framleiðsluferli myndarinnar fór fram í febrúar – apríl 2007 og hefur myndin hvergi verið sýnd opinberlega áður.

Bara 5 mín