Myndin fjallar um plötusnúðinni DJ Platurn, öðru nafni Illugi Magnússon, sem hefur búið í Oakland í Kaliforníu frá barnsaldri. Myndin fylgir honum eftir á 3 vikna tónleikaferðalagi um Ísland þar sem hann sýndi hæfni sína sem „scratch“ og „trick“ plötusnúður og skoðar íslensku hip-hop senuna meða augum aðkomumannsins.
Þórdís Claessen myndskreytir myndina en tónlistin er að mestu frumsamin af Illuga sjálfum. Auk hans má sjá mörg þekkt andlit úr hip hop heiminum á Íslandi fram í myndinni: Erpur Eyvindarson, Sesar A, BENT, Beatur og fleiri. Ragnhildur Magnúsdóttir útvarpskona leikstýrir myndinni, en hún er einnig systir Illuga.
Illugi Magnússon (DJ Platurn) verður viðstaddur frumsýninguna, en hann er þekktur plötusnúður Vestanhafs þar sem hann var meðal annars nýlega á forsíðu DJ Times og spilaði fjórum sinnum á SXSW. Hann er hluti af Oakland Faders Crew frá Oakland, sem hefur unnið til verðlauna á hátíðum erlendis fyrir sinn sérkennilega og flotta „battle“ stíl í plötusnúðakeppnum. Toyota gaf út plötu með þeim árið 2004 í hálfri milljón eintaka eftir að þeir unnu keppni sem 600 plötusnúðar frá um alla USA tóku þátt í. Illugi hefur einnig verið valinn besti plötusnúður Norður Kalíforníu nokkur ár í röð af virtu menningarblaði í Kaliforníu, East Bay Express.
Framleiðandi: Ragnhildur Magnúsdóttir og SPARK ehf.
Leikstjórn: Ragnhildur Magnúsdóttir
Myndvinnsla / klipping: Gunnar B. Guðbjörnsson
Tónlist: DJ Platurn
Lengd: 28 mín.
