Skjaldborg

Gleðifrétt af Kjötborg
Undanfarnar vikur og mánuði hafa þær Hulda Rós Guðnadóttir, Helga Rakel Rafnsdóttir og Stefanía Thors unnið dag og nótt að myndinni Kjötborg. Enda stóð til að  sýna hana sem verk í vinnslu á hátíðinni. Það hefur nú breyst. Þær gleðifréttir hafa borist höfuðstöðvunum að myndin sé fullkláruð! Og því verður hún sýnd fullkláruð á hátíðinni! Við óskum þremenningunum innilega til hamingju og látum okkur hlakka enn meira til að horfa á Kjötborg, fullkláraða!

Lengri opnunartímar
Hin virðulega undirbúningsnefnd náði enn einum góða samningnum í dag. Nú hefur verið ákveðið að sundlaugin á Patreksfirði verði opin frá kl.10-18 bæði laugardag og sunnudag. Og sjálft ‘ATVR á Patreksfirði ætlar að hafa opið á milli 13 og 15 á laugardaginn. Hér hefur því skapast skemmtilegur möguleiki til að skreppa í Ríkið og skella sér svo í sund á eftir. Eða öfugt.

Skemmtilegt
Jæja, þá styttist í hátíðina. Og mikið verður hún skemmtileg. Fyrir utan frábæra dagskrá heimildamynda og heiðursmanninn Albert Maysles, verður fullt af öðrum spennandi viðburðum á Skjaldborg. Á föstudagskvöldinu verður haldið uppi vestfirskri stemningu á Þorpinu. Á laugardagskvöldinu stendur Rafskinna fyrir partíi. Á sunnudagskvöldinu verður bullandi sveitaball í félagsheimilinu. Auk þessa verða haldnar löðrandi kraumandi bubblandi matarveislur á hverjum degi. Jahérnamegin! Athygli er vakin á því að nú er hægt að nálgast dagskrá hátíðarinnar á pdf-formi undir hlekknum „Dagskrá Skjaldborgar 2008“ á forsíðunni.

Hvítasunnudagskvöldið hressilegt
Nú er allt klappað og klárt fyrir heljarinnar lokagleði Skjaldborgarhátíðarinnar í ár. Hér má rýna í tilhlökkunarefnið og tilvonandi skemmtilegheit:

http://www.skjaldborgfilmfest.com/web/wp-content/uploads/2008/05/dans.jpg

Sofella og kræklingarnir sjö
Sjávarréttaveislan sem haldin var í sundlauginni í fyrra sló rækilega í gegn. Nú er búið að rífa gömlu sundlaugina svo þessi svakalega matarorgía verður með nokkuð öðru sniði í ár. Veislan verður nú haldin við Sjóðræningjahúsið og mun fröken Sofella - hin fræga sælkeradrottning Vestfjarða - sjá um veitingarnar. Eldað verður á hlóðum enda er matseðillinn á heimsvísu. Hvítvínsbaðaðir vestfirskir kræklingar og pönnusteiktur „töfraleginn“ steinbítur með ristuðum möndlum og kókos á sætu kartöflubeði með chutney-sultu frá staðnum Chutney sem einmitt er frægastur fyrir chutney-sultuna. Steinbíturinn er í boði Odda. Þrefalt húrra húrra húrra fyrir þeim! Takk fyrir okkur!

Skjaldborgarinn og Skjaldbakan
Þeir eru margir sem muna eftir Skjaldborgaranum sem var seldur á veitingahúsinu Þorpinu í fyrra. Þá hafði ósköp venjulegri uppskrift að ostborgara verið snúið á hvolf svo úr varð nokkurskonar japönsk niðursveifla. Alveg kostulegt ljúfmeti sem sumir gestir hátíðarinnar gátu ekki hætt að borða. Nú hefur sælkeradrottning Vestfjarða - sem stundum kallar sig Sofellu - tekið hina japönsku uppskrift og enn og aftur snúið henni á hvolf. Eða kannski öllu heldur fært úr austri til vesturs. Áhrifin í nýju Skjaldborgarauppskriftina eru nefnilega  sótt í amerísku „diner“ hefðina svo í ár verður þessi löðrandi nautaborgari framreiddur með beikoni, osti, sveppum og bernaise-sósu. Jahérnamegin! Og þetta er ekki búið. Nei, hin kynngimagnaða Sofella hefur nú líka fundið upp Skjaldbökuna. En heyrst hefur að þar sé um að ræða pizzu með rjómaosti og nautalaundum. Aftur jahérnamegin! Þið finnið hvorutveggja á veitingahúsinu Þorpinu yfir hvítasunnuhelgina.

Dagskránni læst
Dagskrá Skjaldborgar 2008 hefur verið læst enda komast ekki fleiri myndir fyrir á sýningardögum hátíðarinnar. Á Skjaldborg í ár verður sýnd 31 íslensk heimildamynd ásamt fjórum myndum Albert Maysles. Það vekur strax athygli hinnar virðulegu undirbúningsnefndar hversu margar myndanna í þessu glæsilega úrvali tengjast tónlist. Þar má nefna tvær myndir um Mínus, nýja mynd um Sigur Rós, verk í vinnslu um Sigríði Níelsdóttur, myndir um Jórunni Viðar og DJ Platurn ásamt költklassík um Rolling Stones. Í öðrum myndum hátíðarinnar er farið vítt og breitt um heiminn og koma margar áhugaverðar persónur við sögu. Má þar nefna karlstripparann Charlie, kverúlanta í heita pottinum, götubörn í Rússlandi, kaupmanninn á horninu, tölvuleikjafíkla og þónokkra hressa Vestfirðinga. Stysta mynd hátíðarinnar er þrjár mínútur en sú lengsta er um 100 mínútur. Vill einn meðlimur hinnar virðulegu nefndar brýna fyrir fólki að taka með sér túpurnar. Og bendir á að ekki sé verra að hafa besta vin fiskimannsins við hendina til að slaka á sjóntaugunum eftir stífan og skemmtilegan dag í bíósalnum. Dagskrá sýningadaganna verður birt á allranæstunni.

Rafskinnupartí
Það er gaman að segja frá því að á laugardagskvöldinu mun sjóntímaritið Rafskinna bjóða gestum Skjaldborgar í hanastél. Tilefnið er útgáfa annars tölublaðs tímaritsins. Er Skjaldborgurum það bæði heiður og ánægja að fá að samfagna þessum góða áfanga í íslenskri útgáfusögu. Gestum hátíðarinnar mun gefast kostur á að kynna sér efni nýja tölublaðsins sem er fagurt, metnaðarfullt og frábært. Í því er meðal annars að finna viðtal við myndlistarmanninn Hrein Friðfinnsson, ný myndbönd með Múm og Björk og eina áhugaverðustu myndina sem var sýnd á Skjaldborg í fyrra.

Einarinn klár
Verðlaunin sem veitt eru á Skjaldborg eru áhorfendaverðlaun. Í lok hátíðar velja áhorfendur sína eftirlætismynd - vegna þess að hún var best, skrýtnust, óvæntust eða eitthvað annað - og verðlaunin eru svo afhent á sveitaballinu á sunnudagskvöldinu. En veðrlaunagripurinn er úr tré og smíðaður af Einari smíðakennara á Patró. Líklega er það þessvegna sem þessi fallegi gripur hefur hlotið gælunafnið „Einarinn“. Myndin Sófakynslóðin eftir þau Garðar Stefánsson og Áslaug Einarsdóttir hlaut verðlaunin í fyrra. Í ár koma 35 myndir til greina.

35 myndir
Á síðustu dögum hafa borist fimm frábærar myndir sem hin virðulega inntökunefnd Skjaldborgar gat ekki annað en bætt við dagskrána þrátt fyrir að hún sé að verða ansi þétt. Þær birtast á listanum um leið og allar upplýsingar liggja fyrir. En semsagt, 35 íslenskar myndir á Skjaldborgarhátíðinni þetta árið. Ofan á þetta frábæra úrval mynda mun svo bætast plokkfiskveisla á vegum kvenfélagsins, skemmtisigling um fjörðinn, óvænt uppákoma í Sjóræningjahúsinu, almennilegt sveitaball og metnaðarfull limbókeppni. Enda kom konan í sjoppunni bara upp einu orði þegar hún frétti af þessu. Hún sagði: „Jahérnamegin!“