Fréttir

Lífsins limbó
(17/04/2009)

Það vaknaði margur gesturinn með kviðslit og strengi í lærum eftir hið árlega Skjaldborgar limbó á sveitaböllum síðastliðinna tveggja hátíða. Í ár mun ekkert lát verða á og það er því spurrning um að komast í jóga og teygjur undir handleiðslu Dalai Lama fyrir hátíðina í ár vilji menn eiga möguleika á titli.

Limbó

Sjávarfang úr flæmska hattinum

Nú síðdegis bárust höfuðstöðvunum sannkallaðar “gourmet” fréttir. Hátíðinni hefur áskotnast fleiri kiló af risarækju (í skel) beint úr flæmska hattinum. Það eru því allar líkur á að gestir munu liggja afvelta í Skjaldborgarbíói undir hugvíkkandi heimildamyndum með hágæða skelfisk í maganum, a.m.k. eina kvöldstund. Það er hinn mikli heiðursmaður Björn Magnússon á rækjubátnum Brynjari BA á Bíldudal sem býður upp á herlegheitin. Skál fyrir því!

Það verður hátíð

Þrátt fyrir gríðarlega erfitt árferði er það stjórn Skjaldborgar gríðarlegt ánægjuefni að tilkynna kyngimagnaða hátíð árið 2009. Menningarauðurinn verður ekki gengisfelldur!

« Eldri fréttir

Nálgast eldri fréttir