Undur vatnsins

Hvergi í heiminum er auðveldara að fylgjst með margvíslegri hegðun vatns og á Íslandi. Hið mikilfenglega Norður-Atlantshaf, fjöldi stöðuvatna, dynjandi fossar, tærir lækir og gruggugar jökulár sem flæða óheftar yfir stór landsvæði í eldgosum.  Vatnajökull er stærsti jökull í Evrópu og í honum er fjöldi hvelfinga og íshella. Og víða á landinu eru eldvirk svæði með leir- og goshverum. Fjölbreytileikinn var okkur hvatning til að gera mynd um þetta merkilega efni. 

Framleiðandi: Kvik kvikmyndagerð(Páll Steingrímsson
Leikstjórn: Páll Steingrímsson
Handrit: Páll Steingrímsson, Finnbogi Rögnvaldsson
Kvikmyndataka: Friðþjófur Helgason, Páll Steingrímsson
Klipping: Páll Steingrímsson
Tónlist: Áskell Másson
Þulur: Arnar Jónsson

Lengd: 50 mín

 

 

Undur vatnsins