Verk í vinnslu
Í borg sem er miskunnarlaus við sín eigin börn gat ekkert bjargað Suyash nema kraftaverk.
Þetta er sagan af götustráknum og heróínfíklinum Suyash sem opnaði meðferðastöð í Kathmandu með hjálp frá áfengisráðgjafa í Chicaco og íslenskum lækni en baráttuvilji þessa unga manns varð til þess að stofnuð voru samtökin Recovery Without Borders.
Hvernig samband komst á milli þessara ólíku einstaklinga frá jafn ólíkum löndum er einstakt. Þessi mynd segir söguna af ótrúlegu lífshlaupi Suyash og hvernig hann komst í samband við Jake Epperly, ferð hans til Nepal og íslenskum lækni sem fór með fullar ferðatöskur af afeitrunarlyfjum til Nepal til að bjarga heróín fíklum í Kathmandu.
Recovery Without Borders eru alþjóðleg góðgerðasamtök lækna og ráðgjafa sem koma á fót meðferðarstöðvum í þriðjaheims löndum þar sem enga meðferð er að fá, heilbrigðiskerfi í nánast ekki til og fíknarsjúkdómar ekki viðurkenndir sem slíkir.
Framleiðsla: Ken Schaefle, Heimir Sverrisson og Kári Sturluson.
Leikstjórn: Heimir Sverrisson
Kvikmyndataka: Heimir Sverrisson
Hljóð: Árni Ben.
Klipping: Steffi Thors
Lengd: 6 mín.
