Árið 1999 hóf listamaðurinn Ragnar Kjartansson tökur á metnaðarfullri leikinni kvikmynd sem bar heitið “The Foreign Minister – this time they’re really sorry” og fjallaði um óopinbera heimsókn serbnesks utanríkisráðherra til Íslands. Þrátt fyrir mikinn metnað var myndin aldrei kláruð á sínum tíma og að lokum týndist myndefnið. Árið 2009 kom hins vegar ein spóla í leitirnar og í kjölfarið var ákveðið að leggja í nýja vegferð þar sem leitast er við að svara því hvaða mynd þetta hefði getað orðið og hvort Ísland væri öðruvísi í dag, hefði hún birst þjóðinni fyrir áratug.
Framleiðandi: Þolmynd
Leikstjórn: Ari Eldjárn og Ragnar Kjartansson
Kvikmyndataka: Hrafn Jónsson
Myndvinnsla / klipping: Kristján Freyr Einarsson
Tónlist: Orgeltríóið Ananas
Lengd: 15 mín.
