Spói - Lengra en nefið nær

Spóinn er einn einkennisfugla í umhverfi okkar.  Það er einkum tvennt sem vekur athygli leikmanns á þessum sérstæða fugli.  Dillandi söngur hans ómar alls staðar þar sem fuglinn ber niður bæði í lofti og á jörðu.  Á varptíma gerir hann engan mun dags og nætur.

Enginn íslenskur fugl,fyrir utan kríuna, á lengri farleið en spóinn. Vitað er að spóar frá Íslandi fara allt niður undir miðbaug og flestir eyða vetrinum í Vestur-Afríku. Merkilegt við ferðir þeirra er að foreldrarnir fara á undan ungunum, en þeir rata á áfangastað, sem er um 7000 km. leið.

Framleiðandi: Kvik kvikmyndagerð/Páll Steingrímsson
Leikstjórn: Páll Steingrímsson
Handrit: Páll Steingrímsson
Kvikmyndataka: Friðþjófur Helgason, Páll Steingrímsson, Hjalti Stefánsson
Klipping: Páll Steingrímsson
Tónlist: Þórður Högnason, Matthías Hemstock, Einar Jóhannesson
Þulur: Guðjón Einarsson
Lengd: 52 mín

Spói