Mynd um hinn goðsagnakennda skemmtistað í miðborg Reykjavíkur.
Menningin blómstraði á búllu í litlum gömlum kofa sem alltaf stóð til að rífa. Og kannski var það lykilatriðið í sérstakri stemningu staðarins, aftur og aftur síðasta partýið um borð í sökkvandi skipi.
En nú stendur kofinn tómur og Sirkusinn er farinn úr bænum.
Leikstjórn: Þorgeir Guðmundsson, Bjarni Grímsson, Gabríela Friðriksdóttir.
Framleiðendur: Glysgirni, Tin, Gyllti hanskinn og Sigga Boston.
Lengd: 15 mín.
