Ísland er ,,stórbrotið, einstakt og fagurt”. En ef fer sem horfir með áframhaldandi ,,nýtingu auðlinda” munu þessar lýsingar ekki lengur eiga við. Austari- og Vestari-Jökulsá eru nú enn ein skotmörk fyrirhugaðra virkjana. Við þekkjum áhrifin af þessháttar framkvæmdum og þá skilyrðislausu röskun lífs á landssvæðunum. Eyðileggingin er skyndileg en jafnframt til frambúðar, svo ekki verður aftur snúið. Í myndinni fylgjumst við með fjölþjóðlegum leiðsögumönnum að störfum við flúðasiglingu (rafting) í ánum og kynnumst þeirra sýn á umhverfið og mikilvægi þess að vernda náttúruna fyrir frekari eyðileggingu.
Leikstjórn, myndataka og klipping: Anup Gurung
Tungumál: Enska
Lengd: 30 mín.
