Í janúar síðastliðnum var í framhaldsdeild FSN á Patreksfirði boðið upp á áfangann ,,heimildamyndagerð 103“. Átján unglingar tóku þátt í áfanganum og gerðu þeir nokkrar myndir og enduðu á sinni eigin heimildamyndahátíð. Ein af myndunum sem var sýnd þar er ,,Sætir strákar“ en hún varpar skemmtilegu ljósi á líf unglinganna í þorpinu.
Myndin er tekin á einum degi í íþróttahúsinu og sýnir andrúmsloftið sem ríkir meðal sætra stráka á körfuboltaæfingu og í ræktinni. Hún er ekki einvörðungu heimild um sæta körfuboltastráka heldur einnig um kvikmyndagerðarkonurnar sjálfar og þeirra hugmyndir um sætleika.
Framleiðsla: Framhaldsdeild FSN á Patreksfirði
Leikstjórn/myndataka/klipping: Jórunn Sif Helgadóttir, Maria Herzog, Margrét Ástrós Gunnarsdóttir
Lengd: 11 mín.
