Sumarið 2005 fór hópur fólks upp að Kárahnjúkum til þess að mótmæla byggingu virkjunar sem sjá átti álveri Alcoa á Reyðarfirði fyrir rafmagni. Mótmælendurnir mættu andstöðu í íslensku samfélagi frá upphafi og voru fljótlega uppnefndir atvinnumótmælendur í fjölmiðlum.
Steinunn Gunnlaugsdóttir var ein þeirra sem tók þátt í þessari baráttu. Persóna hennar var því ákjósanlegur útgangspunktur kvikmyndar sem ætlað var að fjalla um þessa tegund mótmæla og því fyrirbæri sem þeim er stefnt gegn: Kapítalisma.
Myndin fjallar auk þess um neyslumenningu, umhverfisvernd, róttæki, listir og stjórnmál, allt út frá viðfanginu, Steinunni.
Framleiðandi: Kjánska
Leikstjórn: Anna Björk Einarsdóttir, Steinunn Gunnlaugsdóttir, Magnús Þór Snæbjörnsson
Myndataka/klipping: Kjánska
Lengd: 85 mín.
