Lúðrasveit verkalýðsins og 200.000 naglbítar

Árið 2007 ákváðu Lúðrasveit verkalýðsins og 200.000 naglbítar að gera saman plötu. Vinnan við plötuna hófst í janúar 2008 og lauk um haustið sama ár. Meðlimir lúðrasveitarinnar  eyddu öllum sínum frítíma í verkefnið.  Myndin fjallar um samstarfið og fólkið í lúðrasveitinni.

Leikstjórn/ klipping / myndataka: Heimir Freyr Hlöðversson
Kvikun: Jónmundur Gíslason
Framleiðsla: Heimir Freyr Hlöðversson og Vilhelm Anton Jónsson
Hljóðblöndun: Aron Þór Arnarsson

Lengd: 29 mín.

Lúðrasveitin