Verk í vinnslu
Íslenska krónan er heimildamynd sem snýst um eitt mikilvægasta málefni íslenskrar samtíðar: Krónuna. Krónan hefur kannski aldrei verið jafnmikið í deiglunni og nú þótt hún hafi fylgt þjóðinni frá því snemma á 20. öld. En þótt hún sé á forsíðum dagblaðanna á degi hverjum þá grunar handritshöfunda að aðalatriði umræðunnar týnist í frumskógi sértækra hugtaka og pólitískra deilna. Íslenska krónan er heimildamynd sem ætlað er að fjalla um sögu íslensku krónunnar, mögulegan þátt krónunnar í efnahagshruninu og framtíð íslensku krónunnar á aðgengilegan og skemmtilegan hátt.
Hér skiptir framsetning öllu máli. Sjónvarpskokkurinn breski Jamie Oliver hefur tileinkað sér einkennisorðin „það geta allir eldað“. Með myndinni viljum tileinka okkur sömu hugsun: „það geta allir skilið hagfræði”. Í þeim tilgangi verða raunveruleg dæmi stór hluti myndarinnar, en ekki síður alls kyns aðlaðandi grafík, markviss tónlistarnotkun, mikill og breiður hópur viðmælenda og hæfileg kímnigáfa.
Leikstjóri: Garðar Stefánsson
Framleiðendur: Atli Bollason og Hanna Björk Valsdóttir
Handrit: Atli Bollason og Garðar Stefánsson
Kvikmyndataka: Árni Filippus
Klipping: Eva Lind Höskuldsdóttir
Tónlist: Jóhann Magnús Kjartansson
Hljóðvinnsla: Ragnar Ingi Hrafnkelsson
Eftirvinnsla: Helgi Laxdal
Framleiðsufyrirtæki: Litli Dímon
