Í íslenskri alþýðu skyggnumst við inn í nær 400 manna samfélag sem þrátt fyrir að vera tignarlega afmarkað innan grárra, steinsteyptra ,,borgarmúra” mitt í Vesturbæ Reykjavíkur, það er næstum ósýnilegt öðrum en þeim sem þar búa. Samfélagið lútir eigin stjórn, hefur eigin sögu og gildismat og heldur sínar eigin þjóðhátíðir. Í myndinni er fylgst með nokkrum innflytjendum, sem búið hafa mislengi í þessu samfélagi. Þeir lýsa því hvernig þeir hafa komið sér skipulega fyrir eftir að hafa flúið kaótík stóra samfélagsins utan múranna.
Framleiðandi: Rasskinn ehf.
Leikstjórn: Þórunn Hafstað
Myndataka: Þórunn Hafstað
Klipping: Þórunn Hafstað
Lengd: 30 mín