GusGus - SOS Rescue Operation Episode 1

Í kreppu sem öðru er aðeins eitt mikilvægast, að hárgreiðslan sé í lagi.  Þetta vissi GusGus ekki fyrr en þeir hittu Klaus Sverrisson, stílista og lífskúnstner frá Wuppertal í Þýskalandi.  SOS Rescue Operation Episode 1 fjallar um hvernig Klaus tekur á meðlimum GusGus og gjörbreytir þeim til hins betra fyrir útgáfu nýrrar breiðskífu.  Ferskt útlit og snyrtimennska.  Klaus kann sitt fag og lætur ekki staðar numið fyrr en fullkomnun er náð.  SOS Rescue Operation er fyrri hluti af þessu mikilvæga og metnaðarfulla ferli en í þeim seinni tekur ljósmyndarinn Högni Ragnarsson við keflinu. 

Kreditlisti:
Árni Benediktsson
Ási Iceland
Baldur Kristjánsson
Benedikt Reynisson
Birgir Þórarinsson
Daníel Ágúst Haraldsson
Heimir Sverrisson
Jón Atli Helgason
Jörundur Ragnarsson
Linda Loeskow
Stephan Stephensen
Ólafur Egilsson

Lengd: 07:56 mín.

gusgus