Gott silfur gulli betra

Heimildamynd um Handknattleikslið Íslands á Ólympíuleikunum í Peking 2008

Myndin fjallar um undirbúning handboltalandsliðsins fyrir Ólympíuleikana í Peking 2008 og sigurgöngu þeirra á þeim leikjum. Megin söguþráður myndarinnar er allt frá Evrópumeistaramótinu í Noregi í janúar 2008, þar til á Ólympíuleikunum í Peking þar sem silfrið er unnið og loks sigurhátíðin í Reykjavík. Myndin veitir áhorfendum einstakt tækifæri á að kynnast upplifun hetjanna frá Peking og þeim sjálfum.

Leikstjórn: Þór Elís Pálsson
Handrit: Anna Þóra Steinþórsdóttir / Þór Elís Pálsson
Framleiðandi: Guðbergur Davíðsson
Tónlist: Valgeir Guðjónsson
Myndataka:  Guðbergur Davíðsson
Klipping: Anna Þóra Steinþórsdóttir

Lengd: 80 mín.

Gott silfur