Feathered Cocaine

Verk í vinnslu

Fálkar eru stöðutákn í Persaflóanum.  Ef þú átt góðan fálka ertu maður með mönnum, átt sannkallaða konungagersemi.  En þegar dýr eru sett á þannig stall skapast jarðvegur fyrir ýmislegt vafasamt athæfi. Olíudollarar Persaflóans kalla á smygl, ofveiði og rányrkju á fálkunum sem Arabarnir þrá meira en nokkuð annað. Uppáhalds bráðin er einnig á góðri leið með að deyja út sökum gengdarlausrar ofveiði.

Þjóðarleiðtogar, konungsættir, alþjóðlegir hryðjuverkamenn og glæpasamtök tengjast í gegnum fálkann og þráhyggjunnar sem skapast í kringum hann.  Fálkinn er ekki lengur fugl í augum þeirra – hann er verslunarvara. Hann er fiðrað kókaín og þeir eru háðir honum og tilbúnir að borga meira en eina milljón dollara fyrir réttan fugl. Staðan á fálkasmyglinu í dag er bergmál fortíðar styrkt af ómælanlegum auði olíufurstanna.

Framleiðsla/Leikstjórn/Handrit: Örn Marinó Arnarson & Þorkell S. Harðarson
Kvikmyndataka: Halldór Gunnarsson
Klipping: Steinþór Birgisson

Lengd: 75 mín.

 

Feathered Cocain