Eldmessan er tölvugerð mynd um Skaftárelda og Móðuharðindin framleidd af Gagarín fyrir Skaftárelda ehf.
Skaftáreldar eru mestu náttúruhamfarir sem dunið hafa á Íslendinga frá upphafi. Um fimmtungur landsmanna lést, og urðu áhrif umbrotanna svo mikil að alls er talið að um ein milljón manns hafi látist af völdum þeirra í heiminum. Umbrotin er jarðfræðilegt undur og heimildir sr. Jóns Steingrímssonar Eldklerks alveg einstakar.
Gerð myndarinnar átti þann aðdraganda að fyrir rúmum tíu árum var komið á fót sjálfseignarstofnuninni Kirkjubæjarstofu á Kirkjubæjarklaustri til að efla rannsóknir og fræðslu um náttúru, menningu og sögu héraðsins. Fljótlega kom fram hugmynd um að ráðast í tölvugerða mynd um Skaftárelda og afleiðingar náttúruhamfaranna, sem þá gæfi ferðalöngum og öðrum kost á að kynna sér þessa hamfarasögu á þeim stað sem áhrifin eru hvað sýnilegust þ.e. á Kirkjubæjarklaustri. Stofnað var félagið Skaftáreldar ehf. sem sjá myndi um sýningarhald og leitaði félagið í framhaldinu til margmiðlunarfyrirtækisins Gagarín til að sjá um að framleiða 15 mínútna langa mynd sem væri blanda af uppteknu og tölvugerðu efni og skyldi hún gefa góða innsýn í umfang og afleiðingar Skaftárelda.
Frumkvöðlar verkefnisins eru Jón Helgason frá Seglbúðum, Kirkjubæjarstofa og Bær hf. sem er rekstraraðili Hótels Klaustur.
Framleiðandi: Gagarín ehf.
Leik- og verkefnisstjórn: Hringur Hafsteinsson
Myndataka: Heimir Freyr Hlöðversson
Klipping og myndvinnsla: Heimir Freyr Hlöðversson, Helgi Grímsson Laxdal, Sveinbjörn J. Tryggvason, Árni Berúlfur Jónsson og Jónmundur Gíslason
Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson
Lengd: 14.47 mín.
