Verk í vinnslu.
Heimildamynd um þjóð sem þekktust var fyrir fornbókmenntir, tónlist og gjöful fiskimið en er í dag alræmd á alþjóðavettvangi og rambar á barmi gjaldþrots. Orðspor heillar þjóðar hefur verið dregið niður í svaðið af þröngum hópi fólks í óheftri græðgi. Það hefur nú sýnt sig að góðærið var blekking gjörspilltra viðskipta- og stórnmálamanna, byggð á fáránlegum lygum. Afleiðingarnar eru atvinnuleysi, gjaldþrot og skuldavafningar fyrir barnabörnin. Heimildarmyndin “Aumingja Ísland” rekur slóð útrásarvíkinganna. Hvaðan komu peningarnir … hvernig voru þeir notaðir og hvað varð um þá?
Framleiðandi: Ergis kvikmyndaframleiðsla í samvinnu við Friðrik Þór Friðriksson, Senu og Magnús Árna Skúlason
Leikstjórn: Ari Alexander Ergis Magnússon
Handrit: Ari Alexander Ergis Magnússon & Jón Proppé
Myndataka: Bjarni Felix Bjarnason
Klipping: Birgir Páll Auðunarson
Tónlist: Þór Eldon & Einar Örn Benediktsson
Áætluð lengd: 90 min
