Fréttir

Dagskráin birt
(25/05/2009)

Eins og glöggir lesendur heimasíðu Skjaldborgar hafa tekið eftir hefur prógramminu verið læst og dagskráin birt í prentvænni útgáfu. Hún er að sjálfsögðu dúndurþétt og hver einasta mínúta gjörnýtt. Alls er um 21 splunkunýja, rammíslenska, heimildamynd að ræða sem frumsýndar verða á hátðinni auk 6 gríðarlega spennandi verka í vinnslu.  Þar að auki verða 6 myndir eftir heiðursgest hátíðarinnar, Þorfinn Guðnason, sýndar. Það er því deginum ljósara að þetta verður bæði þéttasta og áhugaverðasta dagskráin hingað til. Verði ykkur að´í!

Nálgast eldri fréttir