Fréttir

Gúrmet sjávarréttaveisla í Sjóræningjahúsinu
(20/05/2009)

Matseðillinn frá Maju yfirkokk var að berast í hús fyrir hina snarkandi, gómsætu fiskiveislu sem verður haldin í Sjóræningjahúsinu á hvítasunnudag. Og hann er hreint ekki af verri endanum.

Forréttur: Kræklingur úr Tálknafirði og rækja úr Arnarfirði með heimabökuðu brauði sem dýft er í fantagóða hvítlaukskryddjurtasmjörsoðsósu.

Aðalréttur: Léttsaltaður þorskur með möndluparmesanhjúpi, borinn fram á grænmetisbeði (ratatouielle)

Eftirréttur: Gott skap í vínandalegi (lögur af önd sem einungis finnst við fjöruna sem liggur við Sjóræningjahúsið) ;-)

En þess má geta að hver einasti bökunarofn á Patreksfirði mun virkjaður til þess að baka brauðið með forréttinum - sem er mjög lýsandi fyrir samstöðu og velvild heimamanna í garð hátíðarinnar. 

Verði ykkur að góðu! 

Nálgast eldri fréttir