Skemmtilegir utandagskrárviðburðir: Sumarmarkaður, reiðhjólaleiga og sjóstangaveiði!
(15/05/2009)
Eins og á fyrri hátíðum verður boðið upp á alls kyns skemmtilega utandagskrárviðburði enda hefur Patreksfjörður upp á margt fleira að bjóða en hið margrómaða Skjaldborgarbíó og hina fantaþéttu heimildamyndadagskrá sem fer vaxandi með degi hverjum.
Fyrst ber að nefna Sumarmarkað Vestfjarða sem haldinn verður í Pakkhúsinu (beint á móti Sjóræningjahúsinu) laugardaginn 30. maí frá kl. 13:00 – 17:00. Þar munu heimamenn verða með bása og selja ýmis konar varning úr héraði. Gestum Skjaldborgar mun því gefast einstakt tækifæri á að versla rammíslenskan sveitavarning og 101 lopapeysuliðið getur því verið skrefi á undan kollegum sínum og mætt stolt á Kaffibarinn í sjóðheitri Vestfjarðatísku.
Þá ætla unglingar á Patreksfirði að vera með reiðhjólaleigu um hvítasunnuhelgina þannig að þeir gestir sem eru í kappi við tímann og þurfa að komast með hraði bæjaraenda á milli geta þotið um á hjóli. Eða þeir sem vilja viðra sig eftir stífa bíósetu geta náð sér í fák og tekið túr um plássið. Unglingarnir munu verða með hjól á víð og dreif um bæinn og leigja þau út gegn vægu verði.
Einnig verður hægt að skella sér í sjóstangaveiði gegn hóflegu gjaldi í firðinum og samnýta þannig menningarneyslu og útivist allt í senn. Þessi liður hefur verið sérlega vinsæll á fyrri hátíðum og mjög ólíklegt að eitthvert lát verði þar á. Hver vill ekki sjá það ferskasta í íslenskri heimildamyndagerð, fara út að veiða í blíðunni og gæða sér á ferskum þorski?