Fréttir

Nýtt sjóræningjaþak
(14/05/2009)

Í lokahófi síðustu Skjaldborgarhátíðar lýsti framkvæmdastjóri Sjóræningjahússins því yfir að búið yrði að skipta um þak á húsinu fyrir næstu hátíð. Þar sem yfir-sjóræninginn stendur við orð sín, stór sem smá, var farið í það af fullum krafti að skipta um þak á hluta hússins og er því verki lokið. Það mun því ekki rigna á gesti hátíðarinnar í Sjóræningjahússteitinu þetta árið, ef svo ofboðslega ólíklega vildi til að dropar féllu úr lofti. Þessa dagana er unnið að smíði nýs háfs á eldstæðinu og er stefnt að því að það verði komið á sinn stað og því hægt að kveikja upp fyrir hvítasunnuhelgi. Sjóræningjahúsið verður opið alla hvítasunnuhelgina frá því snemma morguns fram á rauða nótt.

c3beak


Nálgast eldri fréttir

Sjóræningjahús