Míní-Skjaldborg
(14/05/2009)
Áhugi fyrir heimildamyndagerð hefur snaraukist síðustu misseri og er allt að verða vitlaust í framleiðslu mynda á landsvísu. Hátíðahaldarar hafa þó tekið eftir sérstöku ofurtrendi í heimabæ Skjaldborgar, Patró, þar sem fjöldinn allur af júníor heimildamyndagerðarfólki hefur skotið upp kollinum. Júníorar þessir eru af framhaldsskólanemakyni og hafa allir sótt áfangann ,,Heimildamyndagerð 103″ lókallí í Patreksfjordur town. Nú er svo komið að 18 ungir Patreksfirðingar hafa fullklárað hinar ýmsu heimildamyndir og henda að því tilefni í einskonar Míní-Skjaldborg. Hátíðin verður haldin með pompi og prakt fyrir fullu húsi áhorfenda næstkomandi laugardag þann 16. maí kl.15. (Fyrirmyndar-)hátíðin fagnar þessu og óskar vestfirskum heimildamyndagerðarmönnum í mótun innilega til hamingju með árangurinn og hátíðina og hvetjum alla áhugamenn um heimildamyndagerð til að mæta!