Dagskráin birt
(25/05/2009)
Eins og glöggir lesendur heimasíðu Skjaldborgar hafa tekið eftir hefur prógramminu verið læst og dagskráin birt í prentvænni útgáfu. Hún er að sjálfsögðu dúndurþétt og hver einasta mínúta gjörnýtt. Alls er um 21 splunkunýja, rammíslenska, heimildamynd að ræða sem frumsýndar verða á hátðinni auk 6 gríðarlega spennandi verka í vinnslu. Þar að auki verða 6 myndir eftir heiðursgest hátíðarinnar, Þorfinn Guðnason, sýndar. Það er því deginum ljósara að þetta verður bæði þéttasta og áhugaverðasta dagskráin hingað til. Verði ykkur að´í!
Þá styttist í að hinn geðþekki kynnir Skjaldborgar, Teitur Atlason, stígi upp í flugvél á Landvetter flugvelli í Gautaborg og fljúgi heim til Íslands. Hann mun svo taka áætlunarbílinn frá Leifsstöð beint til Reykjavíkur. Eftir stuttan stans hjá sínum nánustu heldur Teitur á flugvöllinn í Vatnsmýri og flýtir sér vestur á Bíldudal. Þar mun hann setjast upp í annan áætlunarbíl sem ekur honum að Skjaldborgarbíói á Patreksfirði. En í sýningarklefanum eru jakkafötin - sem Teitur klæðist jafnan þegar hann kynnir hátíðina - þegar farin að bíða. Og allir þeir sem hafa upplifað Teit kynna og afkynna á sviði Skjaldborgar vita að það fer enginn í fötin hans.
Verndari Skjaldborgar
(24/05/2009)
Hundurinn Tinni er sérstakur verndari Skjaldborgar. Eins og belgíski rannsóknarblaðadrengurinn - og allir þeir sem fást við gerð heimildamynda - er Tinni sífellt á ferðinni, snuddandi og hnusandi af veruleikanum. Þessi mynd rétt náðist af honum í dag á ströndinni við Patreksfjörð. Í Tinna mætast ýmsar hundategundir - íslenskur, labrador, border collie ofl. - enda er hann fordómalaus og besti vinur allra. Tinni kann að heilsa, velta sér í hring og gelta upp á tíu.
Rausnarlegur styrkur
(23/05/2009)
Enn bætist í hóp dyggra bakhjarla hátíðarinnar því þær gleðifregnir bárust rétt í þessu að Menningarráð Vestfjarða hefði ákveðið að veita Skjaldborg rausnarlegan styrk. Kunnum við þeim að sjálfsögðu bestu þakkir fyrir.
Gúrmet sjávarréttaveisla í Sjóræningjahúsinu
(20/05/2009)
Matseðillinn frá Maju yfirkokk var að berast í hús fyrir hina snarkandi, gómsætu fiskiveislu sem verður haldin í Sjóræningjahúsinu á hvítasunnudag. Og hann er hreint ekki af verri endanum.
Forréttur: Kræklingur úr Tálknafirði og rækja úr Arnarfirði með heimabökuðu brauði sem dýft er í fantagóða hvítlaukskryddjurtasmjörsoðsósu.
Aðalréttur: Léttsaltaður þorskur með möndluparmesanhjúpi, borinn fram á grænmetisbeði (ratatouielle)
Eftirréttur: Gott skap í vínandalegi (lögur af önd sem einungis finnst við fjöruna sem liggur við Sjóræningjahúsið)
En þess má geta að hver einasti bökunarofn á Patreksfirði mun virkjaður til þess að baka brauðið með forréttinum - sem er mjög lýsandi fyrir samstöðu og velvild heimamanna í garð hátíðarinnar.
Verði ykkur að góðu!
Skemmtilegir utandagskrárviðburðir: Sumarmarkaður, reiðhjólaleiga og sjóstangaveiði!
(15/05/2009)
Eins og á fyrri hátíðum verður boðið upp á alls kyns skemmtilega utandagskrárviðburði enda hefur Patreksfjörður upp á margt fleira að bjóða en hið margrómaða Skjaldborgarbíó og hina fantaþéttu heimildamyndadagskrá sem fer vaxandi með degi hverjum.
Fyrst ber að nefna Sumarmarkað Vestfjarða sem haldinn verður í Pakkhúsinu (beint á móti Sjóræningjahúsinu) laugardaginn 30. maí frá kl. 13:00 – 17:00. Þar munu heimamenn verða með bása og selja ýmis konar varning úr héraði. Gestum Skjaldborgar mun því gefast einstakt tækifæri á að versla rammíslenskan sveitavarning og 101 lopapeysuliðið getur því verið skrefi á undan kollegum sínum og mætt stolt á Kaffibarinn í sjóðheitri Vestfjarðatísku.
Þá ætla unglingar á Patreksfirði að vera með reiðhjólaleigu um hvítasunnuhelgina þannig að þeir gestir sem eru í kappi við tímann og þurfa að komast með hraði bæjaraenda á milli geta þotið um á hjóli. Eða þeir sem vilja viðra sig eftir stífa bíósetu geta náð sér í fák og tekið túr um plássið. Unglingarnir munu verða með hjól á víð og dreif um bæinn og leigja þau út gegn vægu verði.
Einnig verður hægt að skella sér í sjóstangaveiði gegn hóflegu gjaldi í firðinum og samnýta þannig menningarneyslu og útivist allt í senn. Þessi liður hefur verið sérlega vinsæll á fyrri hátíðum og mjög ólíklegt að eitthvert lát verði þar á. Hver vill ekki sjá það ferskasta í íslenskri heimildamyndagerð, fara út að veiða í blíðunni og gæða sér á ferskum þorski?
Rétt er að taka fram að fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar hafa lagt ríflega á vogarskálarnar á undanförnum vikum til þess að gera hátíðina mögulega. Má þar nefna Odda hf, Flugfélagið Ernir, Loga, Villimey, Bílaverkstæði Palla, Fiskvon, Fiskmarkaðinn, Bílaverkstæði Guðjóns, Fjölval og Kalda auk þeirra fjölda sjálfboðaliða sem hafa lagt nótt við nýtan dag við skipulagningu hátíðarinnar. Kann Skjaldborg öllum þessum aðilum bestu þakkir.
Nýtt sjóræningjaþak
(14/05/2009)
Í lokahófi síðustu Skjaldborgarhátíðar lýsti framkvæmdastjóri Sjóræningjahússins því yfir að búið yrði að skipta um þak á húsinu fyrir næstu hátíð. Þar sem yfir-sjóræninginn stendur við orð sín, stór sem smá, var farið í það af fullum krafti að skipta um þak á hluta hússins og er því verki lokið. Það mun því ekki rigna á gesti hátíðarinnar í Sjóræningjahússteitinu þetta árið, ef svo ofboðslega ólíklega vildi til að dropar féllu úr lofti. Þessa dagana er unnið að smíði nýs háfs á eldstæðinu og er stefnt að því að það verði komið á sinn stað og því hægt að kveikja upp fyrir hvítasunnuhelgi. Sjóræningjahúsið verður opið alla hvítasunnuhelgina frá því snemma morguns fram á rauða nótt.
Áhugi fyrir heimildamyndagerð hefur snaraukist síðustu misseri og er allt að verða vitlaust í framleiðslu mynda á landsvísu. Hátíðahaldarar hafa þó tekið eftir sérstöku ofurtrendi í heimabæ Skjaldborgar, Patró, þar sem fjöldinn allur af júníor heimildamyndagerðarfólki hefur skotið upp kollinum. Júníorar þessir eru af framhaldsskólanemakyni og hafa allir sótt áfangann ,,Heimildamyndagerð 103″ lókallí í Patreksfjordur town. Nú er svo komið að 18 ungir Patreksfirðingar hafa fullklárað hinar ýmsu heimildamyndir og henda að því tilefni í einskonar Míní-Skjaldborg. Hátíðin verður haldin með pompi og prakt fyrir fullu húsi áhorfenda næstkomandi laugardag þann 16. maí kl.15. (Fyrirmyndar-)hátíðin fagnar þessu og óskar vestfirskum heimildamyndagerðarmönnum í mótun innilega til hamingju með árangurinn og hátíðina og hvetjum alla áhugamenn um heimildamyndagerð til að mæta!
Hörkudagskrá
(08/05/2009)
Eins og sjá má hér á síðunni er hátíðinni farinn að berast fjöldi feikilega spennandi nýrra, íslenskra heimildamynda. Það er því nokkuð ljóst að það stefnir í sérlega þétta dagskrá í ár. Meðal viðfangsefna sem bera á góma eru: Rjómaís, undur vatnsins, handbolti, sirkus, rauðsokkur, fálkar, graffiti, myndlist, Lúðrasveit verkalýðsins og margt fleira. Það ætti því hver að geta fundið eitthvað við sitt hæfi en umsóknarfrestur rennur út þann 15. maí. Það fer því hver að verða síðastur að koma á okkur myndum.
Nýrri fréttir »