Skjaldborg
Hátíð íslenskra heimildamynda

Hvítasunnuhelgina 25-28 maí verður haldin hátíð íslenskra heimildamynda í einu fallegasta og minnst þekkta kvikmyndahúsi Íslands; Skjaldborgarbíói á Patreksfirði. Auk þess að frumsýna nýjar íslenskar heimildamyndir, er hátíðinni ætlað að vera vettvangur fyrir kvikmyndagerðarfólk og áhugamenn um heimildamyndir til að hittast og skiptast á skoðunum. Í lok hátíðarinnar verður besta heimildamyndin á Skjaldborg 2007 valin af áhorfendum.

Á sama tíma og gróska hefur aldrei verið meiri í heimildamyndagerð hér á landi hefur reynst erfitt að fá þær teknar til sýninga í kvikmyndahúsum. Á Skjaldborgarhátíðinni á Patreksfirði geta þeir sem unna góðum heimildamyndum komið saman, horft á þær í fyrirtaks sýningaraðstöðu og tekið þátt í tengdum umræðum.

Skjaldborg leggur sig fram við að sýna heimildamyndir sem öðruvísi kæmu aldrei fyrir augu almennings og ber jafna virðingu fyrir hinu smáa, stóra, skrýtna og ódýra. Í bland við stærri og dýrari myndir hátíðarinnar verður að finna heimildamyndir sem fáir vissu að hefðu yfirleitt verið gerðar. Til að koma mynd inn á Skjaldborg þarf hún þó að uppfylla hinar þrjár heilögu reglur hátíðarinnar: 1) Myndin verður (með einhverjum hætti) að geta talist íslensk. 2) Hún má ekki vera (svo) leikin. 3) Myndin má (helst) ekki hafa kostað meira en 350 milljónir. Eru allir þeir sem eiga heimildamynd sem enn hefur ekki fengist sýnd hvattir til að senda inn eintak.

Þær heimildamyndir sem þegar hefur verið raðað á dagskrá hátíðarinnar eru frá því að vera örstuttar og upp í fulla lengd og eru efnistökin fjölbreytt. Sem dæmi má nefna: Kvikmyndafélagið Lortur fylgir Sigur Rós inn á hótel, tjaldstæði og yfir landamæri í mynd um tónleikaferðalag hljómsveitarinnar í Evrópu. Hugleikur Dagsson skoðar hlutverkaleiki í mynd sinni um Dungeons and Dragons. Í Frönsku Rivíerunni eftir Huldar Breiðfjörð er ísbílstjóri eltur um austfirði og fylgst með hvernig gengur að selja bændum ís. Myndin Íslenski herinn eftir Bjarna Massa segir frá því þegar gömul fallbyssa er flutt eftir þjóðvegum landsins. Og í myndinni Syndir feðranna sem Bergsteinn Björgúlfsson hefur unnið að undanfarin fimm ár er ítarlega fjallað um barna- og unglingaheimilið á Breiðuvík.

Heiðursgestur Skjaldborgar 2007 verður kvikmyndagerðarmaðurinn Þorsteinn Jónsson. Hann lagði stund á nám í kvikmyndagerð við hinn kunna kvikmyndaskóla FAMU í Prag og útskrifaðist þaðan 1971. Þorsteinn gerði síðan fjölda heimildamynda fyrir Sjónvarpið og urðu margar þeirra mjög umdeildar. Má þar nefna Fisk undir steini, Gagn og gaman, Lífsmark og Öskudag. Á meðal nýlegra verka Þorsteins eru myndirnar Hanna frá Gjögri, Við byggjum hús og Rockville. Á hátíðinni verða sýndar sex heimildamyndir sem Þorsteinn gerði á 8. áratugnum. Mun Þorsteinn verða viðstaddur hátíðina og ræða um heimildamyndir sínar við gesti.

Skjaldborgarhátíðin verður sett föstudagskvöldið 25. maí en kvikmyndasýningar fara fram á laugardeginum og sunnudeginum. Af öðrum dagskrárliðum hátíðarinnar má nefna pallborðsumræður um íslenska heimildamyndagerð og spjall við leikstjóra fyrir og eftir sýningar á tilteknum myndum. Jafnframt því bjóða heimamenn gestum upp á skoðunarferð um sveitina, siglingu um fjörðinn, sjóstangaveiði, löðrandi grillveislu og á dægilegt sveitaball í lok hátíðarinnar. Verðlaunaafhending verður á mánudeginum 28. maí.

Skjaldborgarbíó á Patreksfirði var nýverið gert upp og er eitt fallegasta kvikmyndahúsið á Íslandi. Það býr yfir fullkominni sýningaraðstöðu, nýju dolby digital hljóðkerfi og tekur 175 manns í sæti. Og leiðin frá Reykjavík á Patreksfjörð er þægileg og falleg. Hægt er að taka Baldur frá Stykkishólmi (með viðkomu í Flatey) og yfir á Brjánslæk. Þaðan er um hálftíma akstur á Patreksfjörð. Stutt er í náttúruperlur eins og Rauðasand, Látrabjarg og gyllta sanda Barðastrandar.

Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda er því gott tækifæri til að bregða sér í fyrsta ferðalag sumarsins og upplifa bæði áhugavert mannlíf og sérkennilega náttúru.