Heiðursgestur Skjaldborgar 2007

Heiðursgestur Skjaldborgar 2007 verður kvikmyndagerðarmaðurinn Þorsteinn Jónsson. Hann lagði stund á nám í kvikmyndagerð við hinn kunna kvikmyndaskóla FAMU í Prag og útskrifaðist þaðan 1971. Þorsteinn gerði síðan fjölda heimildamynda fyrir Sjónvarpið og urðu margar þeirra mjög umdeildar. Má þar nefna Fisk undir steini, Gagn og gaman, Lífsmark og Öskudag. Á meðal nýlegra verka Þorsteins eru myndirnar Hanna frá Gjögri, Við byggjum hús og Rockville.

Á hátíðinni verða sýndar sex heimildamyndir sem Þorsteinn gerði á 8. áratugnum. Mun Þorsteinn verða viðstaddur hátíðina og ræða um heimildamyndir sínar við gesti

 

LÍFSMARK (1974)
16mm – 29:00 mín

Fjögur ungmenni hafa kosið að setjast að í kommúnu uppi í sveit frekar en að lifa borgaralegur lífi í Reykjavík. Þau vilja hverfa til náttúrulegri lífshátta með sjálfsnægtarbúskap og leðuriðju. Þau eru að leita að innri frið og ást en ekki firringu borgarlífsins. Þau hafna kjarnafjölskyldunni og lífsháttum foreldranna. Hippamenningin blómstrar og flestum þykir jafnsaklaust að reykja hass og nota áfengi. Myndin vakti miklar deilur, þegar hún var sýnd í Sjónvarpinu. Á eftir sýningu var umræðuþáttur um efni hennar.

Höfundar: Þorsteinn Jónsson, Ólafur Haukur Símonarson
Kvikmyndataka: Þorsteinn Jónsson
Hljóðupptaka: Ólafur Haukur Símonarson
Klipping: Þorsteinn Jónsson

 

GAGN OG GAMAN (1973)
16mm - 29:00 mín.

Til hvers er myndlistin? Er hún fjárfesting, veggjaskraut, eða hefur hún einhverja meiningu? Og hvað segja myndlistarmenn í myndum sínum? Farið er í ferðalag um samfélagið með fleiri spurnigar en hægt er að svara. Hvernig er sambandið milli myndlistarmanna og neytenda myndlistar? Birtist líf almennings í myndlistinni?

Hvernig tengist umhverfi verkamanns í kerskála Alusviss í Straumsvík fegurð myndlistarinnar?

Höfundar: Þorsteinn Jónsson, Ólafur Haukur Símonarson
Kvikmyndataka: Þorsteinn Jónsson
Hljóðupptaka: Ólafur Haukur Símonarson
Klipping: Þorsteinn Jónsson

 

FISKUR UNDIR STEINI (1974)
16mm – 30:00 mín.

Í Listasafni Íslands gefur að líta upphafna mynd af hetjum, sem draga fisk úr sjó. Menningarmaður úr Reykjavík (Jón Júlíusson) ákveður að fara til Grindavíkur og kynnast af eigin raun lífinu í sjávarþorpi. Hann kemst að því, að þar búa hörkutól, og þar er þrælað myrkranna á milli. Reisulegt félagsheimili stendur í útjaðri þorpsins, en ekki virðist pláss í lífi þessa fólks til að njóta menningar og fagurra lista.

Sýning myndarinnar í sjónvarpi kveikti heitari umræðu um menningarmál á Íslandi en dæmi eru um fyrr eða síðar. Greinar voru enn að berast dagblöðum ári eftir sýningu myndarinnar.

Höfundar: Þorsteinn Jónsson, Ólafur Haukur Símonarson
Kvikmyndataka: Þorsteinn Jónsson
Hljóðupptaka: Ólafur Haukur Símonarson
Klipping: Þorsteinn Jónsson

 

ÖSKUDAGUR (1975)
16mm - 27:57 mín.

Pétur Hraunfjörð hefur verið svo heppinn (eða óheppinn) að kynnst grundvallarritum Marx og Lenin um stéttabaráttuna. Hann verður að gera sér að góðu að vera arðrændur verkamaður í auðvaldsþjóðfélagi, en á góðum stundum milli verka í sorpinu í Reykjavík gluggar hann í kenningar þessara höfunda og ber þær saman við sinn eigin veruleika.

Höfundar: Þorsteinn Jónsson, Ólafur Haukur Símonarson
Kvikmyndataka: Þorsteinn Jónsson
Klipping: Þorsteinn Jónsson

 

DAGLEGT BRAUÐ (1975)
16mm – 30 mín
 
Markmiðið var að draga upp mynd af lífi iðnverkakonu, en sá hópur hafði á þessum tíma lægstu launin og margar konurnar bjuggu við erfiðar félagslegar aðstæður. Formaður vinnuveitenda Davíð Scheving Thorsteinsson og formaður Iðju Guðmundur Þ. Jónsson gefa sitt álit á efninu líkt og þeir væru að horfa á myndina.

Höfundar: Þorsteinn Jónsson, Ólafur Haukur Símonarson
Kvikmyndataka: Þorsteinn Jónsson
Viðbótarkvikm.t.: Haraldur Friðriksson
Klipping:Þorsteinn Jónsson

 

BÓNDI (1974)
16mm - 29:36 mín.

Klassísk heimildamynd um bónda í Seyðisfirði við Ísafjarðardjúp, Guðmund Ásgeirsson, sem hefur búið án rafmagns, véla eða vegarsambands. Þetta er hrein og saklaus sveit, fjarri þéttbýlinu, sem aðeins fáir hafa augum litið. Nú er verið að leggja veg inn Djúpið og vegurinn kemur að notum, þegar kemur að því að hætta hokrinu, fella fjárstofninn og koma sér í þéttbýlið.

Myndin fékk 1. verðlaun á fyrstu Kvikmyndahátíðinni í Reykjavík 1975.

Framleiðandi: Kvikmynd
Handrit, kvikmyndataka, klipping: Þorsteinn Jónsson
Hljóðblöndun: Sigfús Guðmundsson
Þulur: Baldvin Halldórsson
Tónlist: Grieg