Fréttir
Syndir Feðranna– Dagskrárbreyting
(24.5.2007)
Vegna ófyrirsjáanlegra ástæðna verður ekki unnt að sýna Syndir feðranna í heild sinni á Skjaldborgarhátíðinni. Þess í stað verður sýnt 6 mínútna sýnishorn úr myndinni en á eftir verða pallborðsumræður um gerð myndarinnar og Breiðavíkurmálið. Ásamt leikstjórum myndarinnar – Bergsteini Björgúlfssyni og Ara Alexander Magnússyni – munu þrír þeirra manna sem fram koma í heimildamyndinni taka þátt í pallborðsumræðunum. Þeir eru Páll Elísson, vistaður að Breiðavík 9 ára gamall, Bárður Ragnar Jónsson, vistaður að Breiðavík 10 ára gamall, og Georg Viðar Björnsson, vistaður að Breiðavík 11 ára gamall. Skjaldborg biðst velvirðingar á þessari óvæntu breytingu.
Plakatastríð
(24.5.2007)
Undanfarna daga hefur geisað plakatastríð í miðbæ Reykjavíkur. Hefur baráttan orðið hörðust á horni Bankastrætis og Lækjargötu en timburþilið sem var reist þar eftir brunann mikla virðist nú vinsælasta auglýsingapláss landsins. Þar eru plaköt stöðugt límd ofan á plaköt sem var rétt búið að líma ofan á önnur veggspjöld. Síðustu daga hefur meðal líftími plakats á þessu mikilvæga þili ekki verið nema nokkrar klukkustundir, allt niður í 18 mínútur. En í nótt vann Reykjavíkurarmur Skjaldborgar stórkostlegan sigur í þessari hörðu baráttu. Armurinn mætti á þilið seint í gærkvöldi til að líma Skjaldborgarplaköt aftur yfir plakötin sem höfðu verið límd yfir plaköt Skjaldborgar - og þakti þilið. Svo í morgun þegar hinn herskái armur var aftur mættur á þilið til að endurtaka leikinn – níu klukkustundum síðar - blöstu gömlu plakötin enn við! Það telst svokallaður fullnaðarsigur í þessu annars skemmtilega stríði. Er Reykjavíkurarminum óskað til hamingju með þennan frábæra árangur og má búast við heiðrun þegar hann mætir á Patreksfjörð.
Skjaldborgari á tilboði
(23.5.2007)
Nú í hádeginu hittust ferðamálafulltrúi Patreksfjarðar, enskur kokkur og einn af skipuleggjendum Skjaldborgar á sérstökum fundi á veitingahúsinu Þorpinu á Patreksfirði. Fundarefnið: Hvaða áleggstegundir eiga að vera á hamborgaranum sem verður á sérstöku tilboði á Þorpinu yfir hátíðina og mun kallast Skjaldborgarinn. Stóð fundurinn yfir í rétt tæpa klukkustund og voru nokkrar tillögur lagðar fram. Til dæmis jalapeno, ananas, sveppir, beikon og egg. Hægt er að komast að því hver niðurstaða fundarins nákvæmlega varð með því að kíkja á Þorpið um hvítasunnuhelgina og panta sér Skjaldborgara á tilboði.
Gott veður
(22.5.2007)
Þegar haft var samband við spádeild Veðurstofu Íslands fyrir fáeinum mínútum og spurst fyrir um hvítasunnuveðrið á Patró, svaraði yfirvegaður veðurfræðingurinn: “Fyrir vestan verður hæg breytileg átt og víðast léttskýjað.” Við þessi tíðindi brutust út mikil fagnaðarlæti á skrifstofu Skjaldborgar. Þegar þeim linnti aftur hélt veðurfræðingurinn áfram og varð allur nákvæmari í tali: “Á laugardag verður norðlæg átt, þurrt, skýjað með köflum, hiti 2-10 stig. Á sunnudag er gert ráð fyrir svipuðu veðri en hægt hlýnandi.” Semsagt milt og blíða. “En er einhver sól í kortunum?” spurði starfsmaður Skjaldborgar. “Já, það gæti gert sól annaðslagið,” svaraði veðurfræðingurinn með sínum yfirvegaða hætti. Og víst að veðrið verður þetta milt má gera ráð fyrir að gott verði í sjóinn. En það eru auðvitað gleðifréttir fyrir þá sem ætla að taka ferjuna eða bregða sér í sjóstangaveiði. Þótt sjórinn verði sennilega örlítið of kaldur til að hægt verði að synda í honum er fólk engu að síður minnt á að taka með sér sundföt. Á Patreksfirði er dæmalaust fín sundlaug og finnist glufa í þéttri dagskrá hátíðarinnar verður rútuferð í leyni heitan pott fyrir utan Tálknafjörð. Í lok símtalsins þegar veðurfræðingurinn var spurður hvort hann teldi fólk þurfa að taka með sér sólarvörn á hátíðina svaraði hann því til að allur væri varinn góður.
Traust, léttleiki og elegans
(20.5.2007)
Þegar leitin að kynni Skjaldborgar 2007 hófst voru strax fjölmargir nefndir til sögunnar. Í raun allt of margir. Því starfsfólk hátíðarinnar varð ringlað og sat lengi fast í nafnasúpunni. En á endanum stakk klárasti starfsmaður Skjaldborgar upp á því að við valið yrði stuðst við þrjú lykilorð: traust, léttleiki og elegans. Í kjölfarið komu upp nöfn eins og Dorritt Moussaieff, Páll Magnússon, Rannveig Rist, Ólafur Jóhann Ólafsson, Björk og Pálmi Gestsson. Þrátt fyrir að allir væru sammála um að þessir kandídatar stæðu ágætlega undir lykilorðunum náði starfsfólk Skjaldborgar þó ekki að koma sér saman um neinn þeirra.
Það var ekki fyrr en nafn Teits Atlasonar hafði verið nefnt – fyrir algera tilviljun - að Skjaldborgarfólk sameinaðist á ný í atkvæðagreiðslu sem fylgdi á eftir. Hún fór 3-0 fyrir honum. Í framhaldinu var kveikt á reykelsi og því stillt við opinn glugga á skrifstofunni svo að í nokkrar mínútur liðaðist hvítur reykur upp í bjartan Patróhimininn. En með þessum hætti tilkynnir Skjaldborg mannkyninu að nýr kynnir hafi verið valinn.
Teitur Atlason er útgefandi og ritstjóri og verkefnastjóri og fyrrverandi smali. Hann er rúmlega þrítugur og ekur um á Fiat Multipla, árgerð 2001. Teitur bjó um tíma í Kaupmannahöfn og náði þá ágætum tökum á málinu. Auk þess hefur Teitur komið til Svíþjóðar, Noregs, Færeyja, Grikklands, Ítalíu (þar sem hann hreifst af Fiat Multipla bifreiðum), Spánar, Tékklands, Þýskalands, Bandaríkjanna og Póllands. Hér er því heimsmaður á ferð og líklega þessvegna sem frá honum stafar allt þetta traust, allur þessi léttleiki og elegans. Skjaldborg býður Teit Atlason innilega velkominn til starfa og óskar honum allrar mögulegrar farsældar á bakvið hljóðnemann.
Frítt á allar myndir
(19.5.2007)
Að gefnu tilefni skal tekið fram að það verður frítt inn á allar myndir Skjaldborgar. Rifjum nú upp gömlu stærðfræðina og leikum okkur aðeins með þessa ánægjulegu staðreynd. Á hátíðinni verða sýndar 26 myndir. Það kostar 800 krónur á eina mynd í bíó. Ef 800 krónur eru margfaldaðar með tölunni 26 verður útkoman nákvæmlega 20.800 krónur. Þetta þýðir í raun að sá sem kemur á Skjaldborg og horfir á allar myndirnar GRÆÐIR 20.800 krónur. En prófum nú að snúa dæminu við. Hvað gerist? Jú, við sjáum að sá sem mætir ekki á Skjaldborg TAPAR 20.800 krónum. Þannig hjálpar stærðfræðin okkur að skilja hvernig allir verða ríkari af því að koma á Skjaldborg, ekki bara í sálinni og hjartanu, heldur líka í seðlaveskinu.
Eddi Bjöss
(18.5.2007)
Rétt í þessu rúlluðu skemmtileg tíðindi úr faxvélinni í höfuðstöðvum Skjaldborgar; harmonikuleikarinn Eggert Björnsson hefur staðfest komu sína á hátíðina. Þegar fax Eggerts hafði verið lesið þrisvar sinnum upphátt á skrifstofunni skálaði starfsfólk hátíðarinnar í Malti og söng saman gamla smellinn “Ég fer í fríið”, en hélt svo áfram að vinna. Fyrir þá örfáu sem ekki þekkja til þúsundþjalasmiðsins Edda Bjöss er rétt að kynna hann aðeins. Sjórinn er honum í blóð borinn og hann er vanur að taka vindinn í fangið. Fyrir vikið er hann eftirsóttur bátasmiður. Þegar Eddi Bjöss er ekki sjálfur úti að fiska, málar hann myndir sem seljast hraðar en verk Van Gogh. Sumir hafa sagt að Eddi Bjöss sé engum líkur. Aðrir halda því fram að hann sé ekki svo ólíkur náttúru Vestfjarða. Eitt er víst, þar sem þessi mikli meistari tekur fram nikkuna, þar er gott að vera. Og nú hefur það verið staðfest, á meðan Skjaldborgargestir njóta matar síns á laugardags- og sunnudagskvöldi hátíðarinnar, mun sjálfur Eggert Björnsson spila undir borðum.
Á kafi með fiskunum
(16.5.2007)
Þá hefur verið ákveðið að kvöldmatur verði borin fram í gömlu sundlauginni. Fyrra kvöldið verður boðið upp á plokkfisk eða djúpsteiktan steinbít. En seinna kvöldið verður grillmatur - kjöt eða fiskur – á borðum. Hér á Patró er fólk enn að gera upp við sig hvort það að bjóða upp á fisk tvo daga í röð sé of mikið af því góða. Sumir hafa bent á að það gæti verið betra að fá kjöt seinni daginn. Aðrir hafa talað um fiskurinn sem stendur til boða sé ekkert slor og þannig ýjað að því að gott væri að fisk báða dagana. Endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin en þegar að því kemur mun niðurstaðan verða þaulhugsuð og því hárrétt. Önnur stór spurning og öllu erfiðari er hvort skræla eigi kartöflurnar í plokkfiskinn – ef ákveðið verður að bjóða upp á plokkfisk – eða hreinlega hafa hýðið með. En allt mun þetta koma í ljós um hvítasunnuhelgina í gömlu sundlauginni.
Ráðherrar í sjoppunni
(13.5.2007)
Þessa dagana standa yfir miklar endurbætur á götuhlið Skjaldborgarbíós. Til að ljúka þeim fyrir hátíðina var ákveðið að kalla til að alla sem vettlingi geta valdið, líka ráðherra. Á meðan Lionsmenn aðstoðuðu við verklegar framkvæmdir utandyra gættu sjálfir ráðherrarnir sjoppunnar og aðstoðuðu við afgreiðslustörf. Það er greinilegt að hér eru á ferðinni menn sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum fyrir menningarlíf á landsbyggðinni.
Björn Ægir Norðfjörð og Þorsteinn Jónsson
(7.5.2007)
Að loknum sýningum á myndum Þorsteins Jónssonar mun Björn Ægir Norðfjörð ræða við heiðursgestinn á sviði Skjaldborgar. Björn Ægir kennir við kvikmyndafræðideild Háskóla Íslands og skrifar um kvikmyndir fyrir Morgunblaðið. Samkvæmt dagskránni mun spjall þeirra félaga hefjast kl. 20.30 á sunnudagskvöldinu og standa í hálfa klukkustund. Megar gestir búast við áhugaverðum umræðum um kvikmyndaferil Þorsteins og íslenska heimildarmyndagerð. Strax að spjallinu loknu verður sýnd nýjasta mynd Þorsteins Jónssonar: Annað líf Ástþórs.
Hvítasunnuveðrið
(6.5.2007)
Í morgun þegar haft var samband við spádeild Veðurstofu Íslands og spurst fyrir um hvernig myndi viðra um hvítasunnuhelgina á Patreksfirði, svaraði kurteis veðurfræðingurinn: “Þau veðrakerfi eru ekki fædd.” Fræðingurinn hélt svo áfram og útskýrði að þeir á Veðurstofunni spáðu ekki lengra en sex daga fram í tímann. “Þær geta verið ófyrirsjáanlegar lægðirnar. Stundum eru þær að dúlla sér utan við landið dögum saman á meðan aðrar skella allt í einu á landinu.” Við bíðum því bara róleg á meðan hæðirnar og lægðirnar stilla sér upp í hvítasunnukerfið. Og hringjum svo aftur sex dögum fyrir hátíð.
Sveitaball á gylltum sandi
(3.5.2007)
Síðustu daga hafa aukist nokkuð líkur á því að hin eftirsótta hljómsveit Farfuglarnir spili á sveitaballi Skjaldborgar. Samningarferlið hefur verið bæði strangt og flókið enda ekki auðvelt fyrir viðlíka hljómsveit að hnika til plönum sínum – sem ná tvö ár fram í tímann – með svo stuttum fyrirvara. Þegar síðast heyrðist frá umboðsmanni Farfuglana vildi hann ekki slá neinu föstu en sagðist vera nokkuð bjartsýnn á að af komu hljómsveitarinnar gæti orðið. Nú er gert er ráð fyrir að sveitaballið verði haldið í Örlygshöfn og – að öllum líkindum munu Farfuglarnir spila fyrir dansi! Af öðrum skemmtilegum uppákomum sem verið er að setja saman í þessum skrifuðum orðum er glæsilegur kvöldverður í gömlu sundlauginni og spennandi sjóstangaveiði. Ó, komdu, komdu sem fyrst, mín kæra Hvítasunna.
Margar hendur
(2. 5. 2007)
Þessa dagana er undirbúningur í fullum gangi á Patreksfirði og leggjast nú allir á eitt við að gera Skjaldborgarhátíðina sem glæsilegasta: Lionsmenn eru að lagfæra og fínisera Skjaldborg að utan. Oddi hefur fallist á að hafa til allt hráefni í mat. Kvenfélagið ætlar að sjá um matreiðslu í kringum hátíðina. Egill Skallagrímsson mun leggja til góða drykki. Og nú hefur flugfélagið Ernir ákveðið að bjóða sérstök tilboðsfargjöld á hátíðina fyrir þá sem koma úr bænum. (Frekar upplýsingar um þau ásamt gistimöguleikum koma inn á vefinn á allra næstu dögum.)
Gott að fá vont?
(1.5.2007)
Í dag skín sól á Patreksfirði. Og loks er komið vor. Það kemur alltaf. Rétt áðan stóðu þrjár lóur í röð fyrir utan Skjaldborg. Snemma á ferð og greinilega ákveðnar að ná sér í góð sæti. Á meðan ekki er enn komin áreiðanleg veðurspá fyrir Hvítasunnuhelgina spá heimamenn í hvort betra sé að hafa veðrið vont eða gott þegar haldin er kvikmyndahátíð. Einn benti á að ávallt væri betra að hafa veðrið gott. Annar talaði um að hugsanlega væri gott að fá vont þegar sitja ætti inni í bíósal. En sá þriðji vakti athygli á að dagskrá hátíðarinnar væri svo spennandi að engu skipti hvernig veðrið yrði. Urðu svo allir sammála því. Og eitt er víst, að fá 27 myndir á þessa fyrstu Skjaldborgarhátíð, það gæti ekki verið betra.
Dagskránni læst
(30. 4. 2007) Dagskrá Skjaldborgar 2007 hefur verið læst. Þegar hin virðulega inntökunefnd lauk störfum nú í morgun varð ljóst að hvorki fleiri né færri en 27 heimildamyndir hefðu komist á dagskrá hátíðarinnar þetta árið. Þessi háa tala varð inntökunefndinni óvænt ánægja og sýnir jafnframt hversu mikil gróska er í íslenskri heimildamyndagerð um þessar mundir. Tuttugu og sjö myndir! Á tveimur sýningardögum! Það er auðvelt að láta sig hlakka til. Eða eins og einum nefndarmanna varð að orði þegar talan blasti við: “Jahérnamegin, ég held ég hafi bara aldrei áður séð 27 heimildamyndir.” |