![]() |
|||||||||||||||||||
| Arabískar nætur Bítlarnir Buy nothing day Frank fjölskyldan Franska rivíeran Gas Station - Iceland Hugleikir Íslenski herinn Kolaportið Loðmundur syngur Magnús Blöndal Norðureyrarjarlinn Okkar skoðun Perfec t Sófakynslóðin Steypa Transplosive Úr vísnabók heimsins |
Arabískar nætur Hér er sögð örlagasaga bandaríska hermannsins Jack Kensly, 2.667 landa hans ásamt 46.307 annarra íraskra borgara í 7 mínútna stuttmynd eftir Ara Alexander Ergis Magnússon. Stuttmyndin er byggð á niðurhali veraldarvefsins og sýnir blóði drifna sögu Íraks innrásarinnar frá 20. mars 2003 til dagsins í dag, 20. mars 2006. Innblástur við gerð stuttmyndarinnar eru vinnubrögð Leni Riefenstahl við gerð kvikmyndarinnar Dagur Frelsis TAG DER FREIHEIT sem gerð var árið 1935 sérstaklega fyrir þýska herinn. Dagur frelsis sýndi drápsvélar þýska hersins, hátækni vopnabúr síns tíma. Charlie Chaplin snéri útúr Degi frelsis við gerð kvikmyndarinnar Einræðisherran THE GREAT DICTATOR árið 1940. Chaplin endurgerir senur úr verkum Riefenstahl og afskræmir hinn mikla einræðisherra Adolf Hitler, hugmyndarheim og örlög fylgismanna hans. Með því að blanda þessum tveimur vinnubrögð saman sýnir stuttmyndin ARABÍSKAR NÆTUR yfirburði vestrænna ríkja í stríði við Íraka, vopnlausa þjóð. Hvernig henni er slátrað í beinni útsendingu á veraldarvefnum, myndefni þar sem fólk er limlest og drepið af hátækni vopnum breta og bandaríkjamanna með yfirlýstum stuðningi íslenskra stjórnvalda. “Auga fyrir auga” segir í Kóraninum og gegn ofurefli vestrænna þjóða beita írakar sjálfir óhugnanlegum aðferðum á þeim hermönnum sem þeir ná á sitt vald með frumstæðum vopnum sínum. Íraskir jafnt sem bandarískir hermenn koma síðan Snuff film myndefni sínu til skila á veraldarvefnum, myndefni sem vestrænir fjölmiðlar geta hvorki falið né ritstýrt. Sagan endurtekur sig... WAR FOR PEACE Leikstjórn: Ari Alexander Ergis Magnússon |
![]() |
|||||||||||||||||